Atvinnusvæðið

Svæðið sem á þessum síðum er kallað atvinnusvæðið eða atvinnusókn Húsavíkur, er skilgreint sem sú byggð sem er innan 45 mínútna aksturs frá Húsavík. Í stórum dráttum nær svæðið frá Vaðlaheiði í vestri að Jökulsá í austri. 
Í talnagögnum er byggt á tölum fyrir þau sveitarfélög sem nú eru Þingeyjarsveit, Skútustaðahreppur, Aðaldælahreppur, Tjörneshreppur og Norðurþing vestan Jökulsár.

Rétt er þó að hafa í huga að verði af framkvæmdum mun atvinnusvæðið í raun teygja sig inn til Eyjafjarðar, ekki síst með tilkomu Vaðlaheiðarganga.  Enn fremur að áhrifa fyrirhugaðrar framkvæmdar, svo sem afleidd sörf, mun gæta miklu víðar