Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga lét vinna stefmótunaráætlun í ferðamálum á Norðausturlandi til að leggja línurnar í framtíðarskipulagi fyrir tímabilið 2009 til 2014. Til grundvallar í áætluninni er reglurammi Þróunaráætlunar Sameinuðu Þjóðanna um sjálfbæra ferðaþjónustu. Hér að neðan er hluti áætlunarinnar sem snýr að heilsutengdri ferðaþjónustu.
Takmark
Að þróa og bjóða upp á heilsuböð og heilsuþjónustu á heimsmælikvarða.
Markmið
Að fjölga þeim ferðamönnum til Norðausturlands sem nýta sér heilsuböð og aðra heilsutengda ferðaþjónustu.
Vöruþróun
- Þróun heilsulauga (spa retreat), fundir, ráðstefnur og viðburðir
- Setja saman spa-pakka með náttúru, menningu og afþreyingarþemum
- Setja saman spa-pakka fyrir unnustur/konur mæður og dætur
- Þróa spa-upplifun fyrir fagfólk á heilbrigðissviði
Stefnt skal að því að gera heilsu og vellíðan að þema í spa reynslunni. Nota vörumerki / ímynd norðausturlands og myndir í vöruþróun og markaðssetningu.
Fræðsla og þjálfun
- Námskeið, hæfnisviðurkenningar og “framavitund” (career awareness) eru nauðsynleg fyrir starfsfólk í greininni.
Samgöngur
- Þörf er á vegabótum til að komast til allra staða á svæðinu.
- Rúta/skutla frá Akureyri til Húsavíkur eða Mývatnssveitar myndi auðvelda þeim sem ferðast á eigin vegum að komast á áfangastað með áhyggjulausari hætti.
Stoðgreinar
- Hótel gætu gert dvöl gesta sinna meira virði með því að hafa heilsuvörur á boðstólum, t.d. sápur og krem.
- Veitingahús ættu að hafa heilsufæði og hráefni úr héraði sem valkost á matseðlum sínum.
Stoðþjónusta
- Heilbrigðisstofnanir geta stutt við heilsuferðaþjónustu með því að bjóða upp á meðferðir í samstarfi við spa þjónustuaðila.
Ítarlegri upplýsingar er að finna í skýrslunni og jafnframt má fá greinargott yfirlit yfir stefnumótunaráætlunina og hlut heilsuferðaþjónustu í henni kynningu Vilborgar Örnu Gissuradóttur
Jarðhitaauðlindir á Norðausturlandi
