Jarðhitaauðlindir

Árið 2004 fékk Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga styrk til áframhaldandi vinnu í gegnum verkefni sem nefndist Jarðhitaauðlindir – tækifæri til atvinnusköpunar og byggðaeflingar. Meginmarkmið verkefnisins var tvíþætt; annars vegar rannsóknir og kortlagning á jarðhitaauðlindum, vatni, gasi, gufu, leir og útfellingum, til að fá heildarmynd af mismunandi aðstæðum Norðausturlandi m.t.t. nýtingar í heilsuþjónustu, og meta saman við þekkta staðla, hins vegar að greina tækifæri miðað við framangreindar niðurstöður saman við markaðinn, mismunandi markaðssvæði, markhópa o.s.frv.

Að þessu verkefni ásamt AÞ komu þrjár stofnanir innan Háskólans á Akureyri; Ferðamálasetur, Auðlindadeild og Rannsóknarstofnun og einnig Þekkingarsetur Þingeyinga og Heilbrigðisstofnun Þingeyinga. Verkefnisstjórar voru þau Gunnar Jóhannesson hjá AÞ og Hrefna Kristmannsdóttir hjá Auðlindadeild HA. 

Hrefna Kristmannstóttir stýrði jafnframt rannsóknum á auðlindunum og gerir ítarlega grein fyrir þeim í skýrslunni Jarðhitaauðlindir á Norðausturlandi
Markaðshluti verkefnisins var unninn af erlendu ráðgjafateymi undir stjórn Dr. John Hull, og í skýrslu þeirra er ítarleg úttekt á möguleikum og markaðs-tækifærum byggð á niðurstöðum undangenginna rannsókna.

Nokkrar helstu atriði úr rannsóknum Hrefnu voru m.a. kynnt á málþingi um heilsutengda ferðaþjónustu sem haldið var á Húsavík í nóvember 2006. Að því komu AÞ, Heilbrigðisstofnun Þingeyinga, Háskólinn á Akureyri og Hólaskóli.