Frumkvöðlar

Þróun heilsutengdrar ferðaþjónustu í Þingeyjarsýslu á sér langa sögu og þar hefur verið unnið mikið og metnaðarfullt starf í samvinnu við fjölmarga aðila. Skref fyrir skref hefur þar markvisst verið lagður góður þekkingargrunnur að uppbyggingu á þessu sviði.

Það voru þeir Friðfinnur Hermannsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga og Ásgeir Böðvarsson yfirlæknir sem áttu frumkvæði að samþættingu heilbrigðisþjónustu og ferðaþjónustu í Þingeyjarsýslu undir merkjum heilsutengdrar ferðaþjónustu, og áttu þeir jafnframt drýgstan þátt í að fylgja því verkefni eftir í samstarfi við ýmsa aðila. Grunnhugmyndin var að bjóða uppá fjölbreytt námskeið þar sem saman færi heilsuefling, fræðsla, afslöppun, útivist, menning og afþreying undir merkjum heilsutengdrar ferðaþjónustu.

Atvinnuþróunarfélagið kom snemma að málinu, hugmyndin var kynnt lykilaðilum í ferðaþjónustu og fljótlega myndaðist kjarni fólks úr heilbrigðisgeiranum og ferðaþjónustu. Ljóst var að til að fá einhverju áorkað yrði að ráða starfsmann til verkefnisins og haustið 2001 var Jóhanna Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingur HÞ á Mývatni ráðinn í hlutastarf til að vinna að framgangi þess. Fyrstu verkefnin lutu námskeiðahaldi í heilsutengdri ferðaþjónustu. Vorið 2002 var Jóna Fanney Friðriksdóttir ráðin til verkefnisins sem þá gekk undir vinnuheitinu Heilsuferð og um haustið tók Olga Guðrún Sigfúsdóttir við því.

Eins og ávalt er um stórhuga verkefni ræðst framvinda þeirra að mestu af fjármagni sem til þeirra fæst, þrátt fyrir áhuga og elju þeirra sem að þeim koma. Nýting jarðhitans og baðmenning voru frá upphafi ríkur þáttur í hugmyndum um heilsutengda ferðaþjónustu. Var þá m.a. horft til heilsubaðs á Húsavík og Jarðbaðanna í Mývatnssveit sem voru í undirbúningi á þessum tíma og opnuðu 2004.