Þróun heilsutengdrar ferðaþjónustu í Þingeyjarsýslu á sér langa sögu og þar hefur verið unnið mikið og metnaðarfullt starf í samvinnu við fjölmarga aðila. Skref fyrir skref hefur þar markvisst verið lagður góður þekkingargrunnur að uppbyggingu á þessu sviði.
Á grundvelli þeirrar umfangsmiklu undirbúningsvinnu sem hér hefur farið fram er óhætt að fullyrða að Norðausturland búi yfir miklum tækifærum á sviði heilsutengdrar ferðaþjónustu og hjá AÞ er áfram unnið að uppbyggingu heilsuferðamennsku á Norðausturlandi meðal annrs í samstarfi við Háskólann á Akureyri, Heilbrigðisstofnun Þingeyinga, Jarðböðin við Mývatn, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Orkuveitu Húsavíkur.
Svonefnd Norðausturnefnd, sem forsætisráðuneytið skipaði 2008 um atvinnu og samfélag lagði til, m.a. á grundvelli þess starfs sem hér hefur verið unnið, að veittir verði peningar til þróunar á heilsutengdri ferðaþjónustu á svæðinu. Mun það verkefni verða unnið í samstarfi AÞ og Nýsköpunarmiðstöðvar sem opnaði starfsstöð á Húsavík sumarið 2009.
