Umsóknir

Hér má nálgast umsóknareyðublað og leiðbeiningar vegna umsókna til VAXNA.

Síðasti umsóknarfrestur var til 21. janúar 2011.

VAXNA-umsóknareyðublað

Til að vista eyðublaðið er einfaldast að hægri-smella á tengilinn hér fyrir ofan og velja Save Target as… eða Save Link As…, slá síðan inn nafni að eigin vali og smella á Save.

VAXNA-leidbeiningar med umsokn

Skilyrði

  • Að verkefnið feli í sér samstarf tveggja eða fleiri aðila.
  • Að verkefnið falli að meginmarkmiði vaxtarsamningsins um uppbyggingu atvinnulífs á Norðausturlandi og eflingu á samkeppnishæfni þess.
  • Framlag vaxtarsamnings verður aldrei hærra en 50% af kostnaði einstakra verkefna gegn mótframlagi umsækjanda eða annarra þátttakenda.
  • Ekki eru veitt framlög til fjárfestinga í fyrirtækjum eða reksturs fyrirtækja eða opinberra stofnana.
  • Ekki eru veitt framlög vegna stofnkostnaðar.

Áherslur

  • Að verkefnið sé vel skilgreint og skýr markmið sett fram m.t.t. fjölda nýrra starfa, tímasetninga, þarfa, nýnæmi, raunhæfni, kostnaðar o.sv.frv.
  • Að verkefnið feli í sér nýsköpun (nýmyndun/endurnýjun) eða þróun vöru eða þjónustu.
  • Aukin þekking, rannsóknir og gæði í atvinnulífinu m.a. með tengslum atvinnulífs og þekkingarstofnana.
  • Verkefni sem miða að markaðssókn og útrás.
  • Verkefni á sviði menningar, samfélags (grunngerðar) eða annars sem mikilvægt getur talist út frá meginmarkmiði vaxtarsamningsins (atvinnulíf og búsetugæði).

Markhópur

Fyrirtæki, stofnanir, félög og einstaklingar á Norðausturlandi, frá og með Þingeyjarsveit í vestri að og með Langanesbyggð í austri.

Við mat á umsóknum

Umsóknir eru metnar af verkefnisstjórn. Matið byggist á þeim upplýsingum sem umsækjandi leggur fram.

Eftirfylgni

Gerður er samningur milli styrkþega og Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga. Styrkurinn er greiddur út eftir framvindu verkefnisins. Senda skal stutta skýrslu með upplýsingum um framvindu verkefnisins og árangur borinn saman við áform og áætlun í umsókn. Styrkur fellur sjálfkrafa niður ef skýrslu hefur ekki verið skilað innan 6 mánaða eftir að styrkveiting liggur fyrir.