Um samninginn

Vaxtarsamningur Norðausturlands var undirritaður á Húsavík, 8. janúar 2008 af Össuri Skarphéðinssyni iðnaðarráðherra og Tryggvi Finnssyni, framkvæmdastjóra Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga hf. Þetta er sjötti vaxtarsamningurinn sem iðnaðarráðuneytið undirritar og jafnframt sá fyrsti fyrir Norðausturland. Samningurinn markar upphaf nýrrar kynslóðar vaxtarsamninga með því að hann er gerður við einn aðila, Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga hf., og  sér stjórn félagsins og heimamenn alfarið um framkvæmd hans.

Vaxtarsamningurinn er til þriggja ára og er framlag ríkisins, samtals um 90 milljónir króna. Starfssvæði Atvinnuþróunarfélagsins og vaxtarsamningsins nær frá Vaðlaheiði að Bakkafirði og er mikið að flatarmáli, en á svæðinu búa um 5000 manns. Vegna ólíkra staðhátta og atvinnuskilyrða er að því stefnt að skilgreina svæðisbundna klasa þar sem lögð verður áhersla að nýta styrkleika og styrkja veikar hliðar hvers svæðis um sig og hámarka þannig heildarstyrk landshlutans. Samstarf á milli svæða er lykilatriði í því sambandi.

Meðal verkefna sem unnið er að í atvinnuþróun á svæðinu og falla vel að umgjörð samningsins má nefna Þingeyska matarbúrið, Ferðamálaáætlun Norðausturlands, GEBRIS (nýsköpunarverkefni austan Jökulsár á Fjöllum) og Snjótöfraverkefnið í Mývatnssveit.

Samningurinn var kynntur með 8 kynningarfundum víðsvegar um starfssvæðið í byrjun apríl 2008. Glærurnar frá þeirri kynningu má skoða hér:

Vaxtarsamningur – Glærukynning

Samninginn má lesa í heild sinni hér: Vaxtarsamningur Norðausturlands

——————————————————————————–