Stjórn Vaxtarsamnings Norðausturlands fór yfir og afgreiddi þær umsóknir sem bárust í síðustu umsóknalotu. Alls bárust 14 umsóknir að þessu sinni og samtals var í þeim sótt um tæplega 26 milljónir kr.
Að þessu sinni fengu 12 umsóknir brautargengi í matsferlinu sem tekur mið af ákvæðum og reglum Vaxtarsamningsins um þátttöku í einstökum verkefnum.
Hér fyrir neðan er listi yfir þau verkefni sem samþykkt var að taka þátt í og þá upphæð sem þau hljóta, en samtals nema framlög til þeirra 11 milljónum kr.
| Umsækjandi – verkefni |
Upphæð |
| Norðurhjari, ferðaþjónustuklasi -Efling ferðaþjónustu frá Jökulsá að Bakkafirði |
2.000.000 |
| Fuglastígur á Norðausturlandi, klasi -þróun og markaðssetning |
1.500.000 |
| Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga -innleiðing ferðamálaáætlunar fyrir Norðausturland |
1.500.000 |
| Fuglasafn Sigurgeirs -margmiðlunarefni um fugla Íslands |
1.500.000 |
| Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga, f.h. klasa ferðaþjónustuaðila - sameiginlegt markaðs og kynningarstarf „North East Iceland-Edge of the Arctic” |
1.000.000 |
| Fjallasýn Rúnars Óskarssonar ehf -„Arctic Nature Experience” |
800.000 |
| Félag áhugafólks um Heimafóðurverkefnið -Heimafóður – átak til athafna |
750.000 |
| Safnaþing -Samstarf safna og sýninga á Norðausturlandi |
700.000 |
| Daníel Hansen, f.h. áhugahóps - Fræðasetur um forystufé |
350.000 |
| G S solver ehf. - Frjósemi búfjár og frumutala í mjólk – falinn áhrifavaldur? |
300.000 |
| Áhugahópur um eflingu atvinnulífs í Aðaldal -„Textahús” |
300.000 |
| Urður – tengslanet kvenna á Norðausturlandi |
300.000 |
