Stjórn Vaxtarsamnings Norðausturlands (VAXNA) hefur farið yfir og afgreitt umsóknir um þátttöku í verkefnum. Alls bárust 21 umsókn og samtals var sótt um tæpar 70 milljónir kr. Samþykkt var þátttaka í 10 verkefnum að upphæð samtals rúmlega 20 milljónir kr.
Samþykkt var þátttaka í eftirtöldum verkefnum:
Samstarf safna og sýninga í Þingeyjarsýslum
Sail Húsavík 2011
Þingeyska matarbúrið
Jólasveinarnir í Dimmuborgum – töfraland jólanna
GEBRIS – samstarfsverkefni á svæðinu austan Jökulsár á Fjöllum
Norðausturland.is – sameiginlegt kynningarstarf á starfssvæðinu
Upplifum landið – Geotourism
Nýting íslenskra berja
Myndun og uppbygging þekkingarklasa í Langanesbyggð
Stefnumótandi ferðamálaætlun fyrir Norðausturland – framkvæmd verkefna
Samkvæmt ákvæðum vaxtarsamningsins skulu umsækjendur leggja fram a.m.k. sömu upphæð til verkefnanna sem þýðir að gera má ráð fyrir að á næstu misserum verði varið yfir 40 mkr. til þeirra nýsköpunar- og þróunarverkefna sem stjórn VAXNA hefur nú samþykkt þátttöku í.
