Ýmsar skýrslur og erindi

Raufarhöfn – skýrsla atvinnuhóps

Íbúafundir á Kópaskeri

Stefnumótun í ferðaþjónustu á Norðausturlandi

VerkNAUST greinagerð maí 2010 og SVOT greining VERKNAUST
Verkefnisstjórn var sett á laggirnar í kjölfar undirritunar viljayfirlýsingar iðnaðarráðuneytisins og sveitarfélaganna á Norðausturlandi; Norðurþings, Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps hinn 22. október 2009 um samstarf á sviði orkurannsókna, orkunýtingar og stórfelldrar atvinnuuppbyggingar í Þingeyjarsýslum. Sumarið 2010 skilaði verkefnisstjórnin, NAUST, úttekt á fyrstu athugun á mögulegum samstarfsaðila/um og hér ofan til má sjá þá greinagerð.

Greinargerð Náttúruminjasafn Íslands
Starfshópur fulltrúa safna, sýninga og rannsókna- og þróunarstofnana á Norðausturlandi hafa unnið að útfærslu hugmyndar um nýtt og breytt rekstrarform á Náttúruminjasafni Íslands. Hugmyndin er að safnið verði rekið í samstarfi þegar starfand safna og sýninga vítt og breitt um landið þar sem hver sérsýning taki mið af sérkennum þess svæðis sem um er að ræða.

SpatialNorth skyrsla
Greinargerð um aðstæður samþættrar áætlanagerðar í Skútustaðahreppi.

Ferðamenn í Þingeyjarsýslum 2001-2007 Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar 

Landsbyggðin lifi! – Málþing á Kópaskeri í ágúst 2008
Gunnar Jóhannesson, verkefnastjóri hjá AÞ kynnti starf félagsins á málþinginu. Hér má skoða AÞ glærur – Landsbyggðin lifi   og AÞ erindi – Landsbyggðin lifi

Jarðhitaauðlindir á Norðausturlandi – Hrefna Kristmannsdóttir (pdf 2,58Mb – 2008)
Úttekt á efnaeiginleikum vatns á lág- og háhitasvæðum á Norðausturlandi, sem og leirs og ferskvatns og hvernig þessar auðlindir geti nýst til heilsubaða og lækninga. Aðilar að verkefninu eru Auðlindasvið Viðskipta- og raunvísindadeildar Háskólans á Akureyri, Ferðamálasetur Íslands, Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga, Þekkingarsetur Þingeyinga og Heilbrigðisstofnun Þingeyinga.

Jarðskjalftasetur á Kópaskeri
Greinargerð um stofnun Jarðskjálftasetursins á Kópaskeri. Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga og Þekkingarsetur Þingeyinga komu að undirbúningi þessa verkefnis í samvinnu við frumkvöðlana á Kópaskeri.
Skýrslan er tekin saman af Þekkingarsetri Þingeyinga (ÓH) vegna umsókna Skjálftafélagsins um fjármagn til Alþingis og sjóða haustið 2007.

Starf atvinnuráðgjafans (glærur 2007)
Erindi Tryggva Finnssonar á ársfundi Byggðastofnunar 2007

Heimskautsgerði Raufarhöfn (pdf 4,81 mb 2005)
Samantekt upplýsinga um hina frumlegu nýsköpunarhugmynd um byggingu sk. heimskautsgerðis við Raufarhöfn (arctic-henge). Unnið undir stjórn Þekkingarseturs Þingeyinga og Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga í samstarfi við frumkvöðla verkefnisins á Raufarhöfn.
Jóna Kristín Gunnarsdóttir, nemi við Háskólann á Akureyri, vann að verkefninu sumarið 2005.

Ferðamenn í Þingeyjarsýslum 2004  - Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar (pdf  2004)

Fish-farming Husavik – Ásmundur Gíslason, B.S. (Pdf  3,87 mb 2004)
Samantekt á aðstæðum til fiskeldis við Húsavík fyrir mögulega framkvæmdar-/rekstraraðila á sviði fiskeldis. Skýrslan, sem er á ensku, er unnin á Þekkingarsetrinu af Ásmundi Gíslasyni, B.S. sjávarútvegsfræðingi.

Náttúruauðlindir í Öxarfirði – Auður Aðalbjarnardóttir (pdf 2,57 mb 2004)
Samantekt gerð fyrir Öxarfjarðar- og Kelduneshrepp, unnin hjá Náttúrustofu Norðausturlands.