Þegar horft er til hlutverks og markmiða AÞ gefur auga leið að viðfangsefnið er víðfemt og tekur ekki eingöngu á atvinnumálum beint. AÞ sinnir t.d. ýmsum verkefnum í samstarfi við Byggðastofnun og sveitarfélögin er lúta að úttektum, gagnaöflun og öðru sem tengist byggðamálum. Ennfremur er AÞ ætlað að hafa frumkvæði að úrbótum í byggðamálum eftir því sem aðstæður kalla á, efna til samstöðu og samstarfs, eða samþættingu verkefna.
