Atvinnumál

Eitt af megin markmiðum AÞ er að efla og auka fjölbreytni í atvinnulífi í Þingeyjarsýslum. Til að ná fram þessu markmiði vinnur félagið náið með sveitarfélögum, fyrirtækjum og einstaklingum á svæðinu við margvísleg verkefni tengd atvinnusköpun og uppbyggingu. Upplýsingaöflun og greining á atvinnu- og byggðamálum er stór þáttur í starfi félagsins og styður það við þá uppbyggingu sem á sér stað í atvinnumálum á svæðinu.

Félagið hvetur einstaklinga og fyrirtæki á starfssvæðinu til að hafa samband ef viðkomandi telja að það geti orðið að liði. Viðskiptavinir geta verið vissir um að fyllsta trúnaðar er gætt. Þjónusta félagsins er notendum að kostnaðarlausu að vissu marki.

Atvinnusköpun

Atvinnuþróunarfélagið aðstoðar fyrirtæki og einstaklinga í atvinnuskapandi verkefnum á svæðinu. Hvort sem um er að ræða viðbót við núverandi rekstur, stofnun fyrirtækis eða nýsköpunarverkefni. Starfsmenn félagsins geta veitt aðstoð við:

Hagkvæmniathugun

  • Viðskiptaáætlanir
  • Markaðsvinnu
  • Vöruþróun
  • Upplýsingaöflun
  • Véla-og tækjakaup
  • Gæðamál o.fl.

 Auk þess veita starfsmenn aðstoð við öflun styrkja- og lánsfjár fyrir margvísleg verkefni bæði stór og smá.

Námskeið

Ein af meginstoðum atvinnulífsins er menntun og hlutverk Atvinnuþróunarfélagsins er að stuðla að fjölbreyttu og aðgengilegu námi og námskeiðum í sýslunum. Í þeim tilgangi stendur félagið fyrir ýmsum námskeiðum og kynningum á starfssvæðinu tengt atvinnu-og ferðamálum, bæði á eigin vegum og í samvinnu við aðra. Þá var félagið virkur aðili í undirbúningsvinnu að stofnun Fræðslumiðstöðvar Þingeyinga og á fulltrúa í stjórn hennar. Atvinnuþróunarfélagið starfar í nánum tengslum við Fræðslumiðstöðina og getur því boðið aðgengi að mjög fjölbreytilegum námskeiðum tengdum: stofnun og rekstri smáfyrirtækja, gerð viðskiptaáætlana, gæðastjórnun, umhverfisstjórnun, verkstjórn o.m.fl. Þeim sem hafa áhuga á upplýsingum um möguleika á sérhæfðum námskeiðum og/eða óska eftir liðsinni félagsins varðandi atvinnutengd námskeið er bent á að senda fyrirspurnir á netfangið: reinhard@atthing.is

 Rekstur

Fyrirtæki og einstaklingar í Þingeyjarsýslum sem reka eða ætla að hefja rekstur fyrirtækis geta óskað eftir ráðgjöf eða aðstoð Atvinnuþróunarfélagsins. Aðstoð þessi felst aðallega í rekstrarúttekt og rekstraráætlun (viðskiptaáætlun) á núverandi eða fyrirhuguðum rekstri fyrirtækis. Rekstraráætlun er nauðsynleg forsenda fyrir öllum fyrirtækjarekstri og verður í raun aldrei hægt að segja of mörg orð um ágæti slíkrar áætlunar (sjá vandamálin fyrirfram og bregðast við þeim). Þá eru slíkar áætlanir forsenda fyrir lánafyrirgreiðslum og styrkjum. Viðskiptaáætlun er nauðsynlegt tæki til að meta hagkvæmni fyrirhugaðs rekstrar.

Rekstrarúttekt

Rekstrarúttekt er greining sem gerð er til að meta stöðu fyrirtækisins út frá ýmsum upplýsingum um fyrirtækið þ.á.m.:

  • Vöru/þjónustu
  • Markaðssvæði
  • Staðsetningu
  • Fjárhagslegri stöðu
  • Rekstrarlegri stöðu

Rekstraráætlun

Rekstraráætlun er unnin út frá rekstrarúttekt. Í áætlun koma fram tillögur að úrbótum og rekstraráætlun varðandi núverandi rekstur.
Helstu þættir í áætlun eru:

  • Varan/þjónustan
  • Markaðurinn
  • Staðsetning
  • Framkvæmdaráætlun
  • Rekstraráætlun
  • Starfsmenn
  • Fjármögnun
  • Niðurstaða (úrbætur)

Viðskiptaáætlun

Viðskiptaáætlun er í raun sama og rekstraráætlun nema að rekstur er ekki hafinn á þessu stigi. Hlutverk viðskiptaáætlunar er að meta hagkvæmni viðskiptahugmyndar.
Helstu þættir í áætlun eru:

  • Viðskiptahugmyndin
  • Stofnaðilar
  • Varan/þjónustan
  • Markaðurinn
  • Staðarval fyrirtækisins
  • Framkvæmdaráætlun viðskiptahugmyndar
  • Rekstraráætlun
  • Starfsmenn
  • Fjármögnun
  • Niðurstöður (hagkvæmismat)