Urður – tengslanet kvenna

Stofnfundur tengslanets kvenna á Norðausturlandi var haldinn föstudaginn 15. janúar 2010 á Húsavík og hlaut félagið nafnið Urður, tengslanet kvenna á Norðausturlandi.

Markmið félagsins er að;
* efla samstöðu og samstarf kvenna
* efla félagskonur í stjórnunar-, rekstrar- og félagsstörfum eða öðru sem styrkt getur persónulega og faglega færni þeirra.

Markmiðum sínum hyggst félagið ná með því að standa að viðburðum, funda og námskeiðahaldi. Með upplýsinga og tengslaveitu á netinu og annarri fræðslu- og upplýsingastarfsemi
Starfssvæði félagsins nær frá Vaðlaheiði í vestri til Bakkafjarðar í austri.

Stjórn Urðar er skipuð eftirtöldum konum;
Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, Húsavík, formaður
Elísa Björk Elmarsdóttir, Húsavík
Kristjana Erna Helgadóttir, Kópasker
Svanhildur Kristjánsdóttir, Þingeyjarsveit
Jóna Matthíasdóttir, Húsavík

Í varastjórn sitja;
Gréta Bergrún Jóhannesdóttir, Þórshöfn
Ásdís Erla Jóhannesdóttir, Mývatn
María Svanþrúður Jónsdóttir, Reykjahverfi

Áhugasamar konur sem vilja skrá sig í Urði tengslanet kvenna á Norðausturlandi hafi samband við Jónu í síma 464-0415 eða netfangið jona@atthing.is og/eða urdurtengslanet@gmail.com