Ferðafélag Húsavíkur

Formaður félagsins er Ingvar Sveinbjörnsson. Sími 464-1122, 464-2072 eða 894-0872.

Gönguferðir:

Ferðafélag Húsavíkur skipuleggur árlega góða dagskrá þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Allir eru velkomnir í ferðir FFH félagsmenn sem aðrir.

____________________________________________________

Ferðaáætlun Ferðafélags Húsavíkur 2009  

24. júní Jónsmessuganga á Geitafell - kvöldganga. Mæting kl. 20 við afleggjarann að Geitafellshnjúk.

Þá verður boðið uppá þrjár gönguvikur á svæðinu í sumar. Sú fyrsta verður í Suður-Þingeyjarsýslu og stendur frá 13. - 20. júli. Göngurnar eru fjölbreyttar og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Ferðafélag Húsavíkur og Mývatnsstofa hafa umsjón með göngunum. Önnur vikan verður í Vatnajökulsþjóðgarði, hún byrjar 20. júlí og stendur til 27. júlí. Landverðir þjóðgarðsins hafa umsjón með göngunum. Að endingu verður boðið uppá göngur í Norður-Þingeyjarsýlu. Nýtt ferðafélag, Norðurslóð, var stofnað á vordögum og hefur það umsjón með síðustu vikunni sem stendur frá 3. - 9. ágúst.
 

Mánudagurinn 13. júlí
Vindbelgarfjall í Mývatnssveit

Gengið er af stað frá þjóðvegi vestan Vagnbrekku. Gangan að fjallinu tekur um 30 mín og þá tekur við 30 mín uppganga á fjallið. Gönguhækkun er 240 m en fjallið sjálft er 524 m/y.s. Af toppnum er gott útsýni yfir Mývatn og nágrenni. Gangan er 4.8 km og tekur 2 klst.
Gangan hentar flestum. Mæting við afleggjarann að fjallinu kl. 20:00

Skráning hjá Mývatnsstofu: 464-4390

Þriðjudagurinn 14. júlí
Fremstafell að Ljósvetningabúð

Gengið á bökkum Djúpár að Barnafossi í Skjálfandafljóti. Þaðan er gengið með gljúfrunum að Fellsskógi og gengið í gegnum skóginn að Ljósvetningabúð. Mæting við Ljósvetningabúð kl. 13:00 og þaðan er fólk ferjað í Fremstafell.
Gangan er um 11 km og tekur 4 klst. Létt ganga, engin hækkun

Skráning hjá Húsavíkurstofu: 464-4300

Miðvikudagurinn 15. júlí
Dimmuborgir, Hverfjall, Jarðböðin.

Ganga um ævintýralegar hraunmyndanir Dimmuborga og létt fjallganga á gíginn Hverfjall. Þaðan er svo gengið svo vestan undir Beinahrygg í Jarðböðin þar sem tilvalið er að slaka á og láta líða úr sér.
Gangan er um 8 km og tekur 3 - 4 klst. Ganga fyrir fjölskyldur sem eru í gönguformi. Mæting við Jarðböðin kl. 16:00

Skráning hjá Mývatnsstofu: 464-4390

Fimmtudagurinn 16. júlí
Niður með Laxá

Gengið er með Hofsstöðum niður með Laxá að austanverðu. Yfir brúna nálægt Hamri í Ljótsstaði. Mikil náttúrufegurð og gróðursæld er í Laxárdal. Mikið fuglalíf er á ánni. Lagt er að stað frá Hofsstöðum kl. 10:00 Séð verður um farþegaflutninga að Hofsstöðum og að göngu lokinni til Húsavíkur og Mývatns eftir þörfum. Gangan er um 10 km og tekur 4 klst. Létt ganga

Skráning hjá Húsavíkurstofu: 464-4300

Föstudagurinn 17. júlí
Leirhnjúkur - Þríhyrningar - Dalfjall - Námaskarð, endað við Jarðböðin

Gengið er um fjölbreytt landslag og gott útsýni er til allra átta. Eldsumbrot hafa mótað landslagið frá örófi alda og meðal þess sem göngumenn fá að upplifa eru jarðhitasvæði og mikil litadýrð. Gangan er um 13.5 km og tekur 4 - 5 klst. Lengri ganga og ekki fyrir litla krakka. Mæting við Jarðböðin kl. 16:00

Skráning hjá Mývatnsstofu: 464-4390

Laugardagurinn 18. júlí
Skálavíkurhnjúkar

Gengið er úr Naustavík á Skálavíkurhnjúk. Þaðan er ægifagurt útsýni yfir Víknafjallgarðinn á milli Skjálfanda og Flateyjardals, Tjörness og Grímseyjar. Fjallið er um 1200 m/ys. Gangan er um 7 klst í nokkuð erfiðu landslagi. Lagt verður af stað kl. 9:00. Farþegaflutningur í Naustavík fer eftir aðstæðum og veðri. Nánari upplýsingar síðar. Ganga í nokkuð erfiðu landslagi með mikilli hækkun

Skráning hjá Húsavíkurstofu: 464-4300

Sunnudagurinn 19. júlí
Hrafnabjörg - Aldeyjarfoss

Gengið er frá Hrafnabjargarfossum meðfram Skjálfandafljóti að Aldeyjarfossi. Á leiðinni fá göngumenn tækifæri til þess að upplifa stórbrotna náttúru, fallegt stuðlaberg og stórkostlega fossa. Að göngu lokinni er tilvalið að gæða sér á hnallþórum í Kiðagili. Gangan er um 6 km og áætlaður göngutími er 6 klst. Létt ganga með náttúruskoðun. Mæting í Kiðagil í Bárðardal kl. 10:00

Skráning hjá Húsavíkurstofu: 464-4300

Skálar félagsins:

Ferðafélag Húsavíkur og Ferðafélag Fljótsdalshéraðs eiga saman og reka Sigurðarskála í Kverkfjöllum.

Félagar í Ferðafélagi Húsavíkur, í samvinnu við Norðurvík á Húsavík, unnu að smíði og frágangi á nýjum skála á fyrri hluta árs 2004 sem síðan var fluttur á Heilagsdal í júlí það ár. Heilagsdalur er austan Bláfjalls sem er suðaustur af Mývatni. Upplýsingar: Ingvar í síma 464-1122, 464-2072 eða 894-0872.