AÞ veitir einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum á starfssvæðinu fjölþætta þjónustu á sviði viðskiptaráðgjafar.
Í samræmi við samstarfssamning AÞ og sveitarfélaga eru meginmarkmið eftirfarandi:
- Að stuðla að jákvæðri þróun atvinnulífs í Þingeyjarsýslum.
- Að bæta almenn búsetuskilyrði á starfssvæði félagsins í samstarfi við sveitarfélögin á svæðinu og samtök þeirra
- Að skipuleggja og standa fyrir fjölbreyttum stuðningsaðgerðum í þágu þeirra sem eru í atvinnurekstri, hyggja á atvinnurekstur eða tengjast þróun atvinnulífs.
- Að auka nýsköpun og arðsemi í atvinnulífinu með verkefnum og þjónustu, sem fela í sér hagnýtt gildi og er hvetjandi til athafna á sviði atvinnusköpunar
