Hvatningarverðlaun AÞ afhent í ellefta sinn.

Á aðalfundi AÞ sem fram fór 18.maí sl. voru hvatningarverðlaun Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga afhent í ellefta sinn.

Í samþykkt stjórnarinnar um tilgang hvatningarverðlaunanna segir:
“Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga skal á hverju ári veita viðurkenningu, eina eða fleiri, fyrir framúrskarandi starf á starfssvæði félagsins.
Viðurkenningin getur verið fyrir: Nýsköpun, góðan árangur í rekstri, frumkvæði eða annað það sem styrkir atvinnulífið og gerir það fjölbreyttara. Einnig er hægt að veita viðurkenningu fyrir góðan árangur í opinberri þjónustu og árangursríku menningarstarfi . Viðurkenninguna skal veita á aðalfundi félagsins ár hvert.”

Að þessu sinni ákvað stjórn AÞ að veita Mýflugi hf. og stjórnendum félagsins viðurkenningu fyrir þrautseigju og útsjónarsemi við að halda úti sérhæfðri flugstarfsemi í meira en aldarfjórðung.

Í umsögn um sögu fyrirtækisins segir;
Flugfélagið Mýflug hf. var stofnað þann 7. apríl 1985 með það að markmiði að bjóða upp á útsýnis-, leiguflug og flugkennslu út frá Reykjahlíð við Mývatn. Eftir því sem starfsemin færðist í aukana var ákveðið að reisa flugskýli og farþegaafgreiðslu á Reykjavhlíðarflugvelli, sem komust í gagnið árið 1987.

Ýmsar flugvélategundir voru starfræktar fyrstu árin og má þar meðal annars nefna: Cessna 152, Cessna 172, Cessna 206 og Piper PA-23 Apache. Það sem þessar tegundir áttu sameiginlegt var mjög takmarkað sætaframboð en það breyttist árið 1990 þegar keypt var 10 sæta Piper Chieftain flugvél sem jók þjónustuframboðið til muna, og var meðal annars hafið áætlunarflug á milli Reykjavíkur og Mývatns á þeirri flugvél.
Árið 1997 hóf félagið einnig áætlunarflug á milli Mývatns og Hafnar í Hornafirði, en sú þjónusta var aflögð tveimur árum síðar ásamt áætlunarfluginu á milli Reykjavíkur og Mývatns. Þess í stað var hafið áætlunarflug á milli Reykjavíkur og Húsavíkur með nítján sæta Dornier 228 skrúfuþotu sem leigð var af Íslandsflugi.
Rekstrarumhverfi áætlunarflugs á Íslandi var erfitt á þessum árum og vonbrigði urðu með sætanýtinguna á flugleiðinni og var þjónustan að lokum felld niður 18 mánuðum síðar. Í kjölfarið tók rekstur Mýflugs miklum breytingum og beindist reksturinn fyrst og fremst að ferðaþjónustu. Áhersla var lögð á útsýnisflug frá Mývatni ásamt leigu- og sjúkraflugi.

Frá ársbyrjun 2006 hefur Mýflugi sinnt sjúkraflugsþjónustu á norðursvæði landsins til ársins 2011 með möguleika á tveggja ára framlengingu. Svæðið sem Mýflug þjónar er í raun allt landið, utan suð-vesturhornsins.
Keypt var Beechcraft Kingair 200 flugvél og innréttuð sem sérhæfð sjúkraflugvél með nauðsynlegan aðbúnað til umönnunnar sjúklinga, þar á meðal tvær sjúkrabörur.
Árið 2008 færði Mýflug út kvíarnar þegar félagið samdi við Flugstoðir um daglegan rekstur flugvélar Flugstoða, sem er af sömu gerð og sjúkraflugvél félagsins. Upphaflega var samið til eins árs, en árið 2009 var samningurinn endurnýjaður til næstu þriggja ára. Samningur þessi gerði Mýflugi kleift að hafa á að skipa varaflugvél til sjúkraflugs, ásamt því að vera tiltæk í önnur verkefni, þ.á.m. leiguflug.

Vélin er staðsett á Reykjavíkurflugvelli og sinnir einnig flugprófunum á Íslandi, Grænlandi og Færeyjum.
Árið 2008 var einnig vígt nýtt flugskýli Mýflugs og Flugskóla Akureyrar á Akureyrarflugvelli. Ásamt því að hýsa flugvélar Mýflugs og Flugskólans eru einnig skrifstofur, kennslustofa og biðstofa til húsa á efri hæð byggingarinnar.

Í dag samanstendur floti félagsins af fimm flugvélum og er fjöldi starfsmanna mestur á sumrin þegar 12-15 manns, þar af 13 flugmenn, starfa fyrir félagið.
Eins og sést á þessari yfirferð hefur félagið tekið breytingum í gegnum tíðina þar sem nýtt hafa verið þau sóknarfæri sem gefist hafa en einnig verið tekist á við oft erfið og sveiflukennd ytri skilyrði.

Það var Birgir Steingrímsson starfsmaður Mýflugs sem tók við viðurkenningarskjalinu úr hendi Sigurgeirs Höskuldssonar stjórnarformanns AÞ

 

Comments are closed.